
Gullni hringurinn
Gullni hringurinn er ein þeirra útsýnisferða sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Hápunktarnir eru Geysissvæðið, Gullfoss og Þingvellir.
235.000 kr.fyrir ferðina, ekki á mann
- Lengd
- 8 klukkustundir
- Fjöldi
- Mest 6 gestir
- Tímabil
- Allt árið
- Erfiðleikastig
- Auðvelt
Sótt: Hella, Hvolsvöllur og nágrenni, án gjalds; annars staðar eftir samkomulagi
Land Roverinn er upphækkaður og breyttur og það er hátt upp í hann. Ef einhver í hópnum gæti átt erfitt með það, hafðu samband áður en þú bókar: +354 691 1849 eða mudshark@mudshark.is.
Í þessari ferð er farið um Þingvelli, Geysi og Gullfoss. Náttúra Íslands og saga fléttuð í eina heild. Fjölmargir aðrir staðir á leiðinni sem við kíkjum á allt eftir áhuga hvers og eins t.d. Skálholt, tómataræktin í Friðheimum, Faxi og jafnvel fleiri. Við getum líka skipulagt stopp í Gömlu lauginni á Flúðum. Viltu borða hádegismat í gróðurhúsi á Friðheimum? Allt hægt. Láttu okkur vita og við pöntum borð. Verðið er hóflegt og alltaf gaman að koma þar við. Munið að þar sem þetta er einkaferð, ráðið þið ferðinni. Sveigjanleiki er aðalatriðið og við höfum bara gaman af því að vera saman! Þessa ferð má bóka hvenær sem er allt árið.
Greiðsla og afbókun
Ferðin er staðfest þegar hún hefur verið greidd að fullu. Ef afbókað er með minnst 48 klukkustunda fyrirvara er ferðin endurgreidd að fullu. Ef afbókað er með skemmri fyrirvara, eða ef gestir mæta ekki, er ekkert endurgreitt. Afbókun þarf að berast skriflega á mudshark@mudshark.is eða í síma +354 691 1849. Ef MudShark þarf að fella ferð niður, vegna veðurs eða af annarri ástæðu, bjóðum við annan dag og fulla endurgreiðslu ef enginn dagur hentar.
Viltu spyrja að einhverju? Smelltu hér.
Þér gæti einnig líkað
Allar ferðir → Hálendi
Landmannalaugar
Landmannalaugar eru einstakar og engin furða að þær séu einn vinsælasti áfangastaður á hálendinu. Stórkostlegt landslag og litadýrð.
245.000 kr.fyrir ferðina
Hálendi
Þórsmörk og Básar
Það skiptir ekki máli hvernig viðrar — Þórsmörk er alltaf dásamleg, aðeins 64 km frá Hellu.
235.000 kr.fyrir ferðina
Strönd
Suðurströndin
Heilsdagsferð meðfram suðurströnd Íslands, yfir stærsta landbúnaðarsvæði landsins, með leiðsögumanni sem er doktor í grasafræði og vistfræði.
235.000 kr.fyrir ferðina