Beint í efni
Strönd

Suðurströndin

Heilsdagsferð meðfram suðurströnd Íslands, yfir stærsta landbúnaðarsvæði landsins, með leiðsögumanni sem er doktor í grasafræði og vistfræði.

← Allar ferðir

235.000 kr.fyrir ferðina, ekki á mann

Lengd
8 klukkustundir
Fjöldi
Mest 6 gestir
Tímabil
14. okt. – 31. des.
Erfiðleikastig
Auðvelt

Sótt: Hella, Hvolsvöllur og nágrenni, án gjalds; annars staðar eftir samkomulagi

Land Roverinn er upphækkaður og breyttur og það er hátt upp í hann. Ef einhver í hópnum gæti átt erfitt með það, hafðu samband áður en þú bókar: +354 691 1849 eða mudshark@mudshark.is.

Við leggjum af stað frá Miðjunni á Hellu klukkan níu og höldum austur á bóginn. Á leiðinni fræðumst við um búskap og sveitamenningu og stoppum við fossa, stóra og smáa — Gluggafoss, Seljalandsfoss, Gljúfrabúa og Skógafoss. Við kíkjum á Dyrhólaey og Reynisfjöru en snúum við í Vík, þar sem hægt er að líta við í ullarversluninni, nú eða ná sér í eina með öllu. Frá Vík á Hellu er um klukkustundar akstur og við erum komin til baka um fimm leytið.

Greiðsla og afbókun

Ferðin er staðfest þegar hún hefur verið greidd að fullu. Ef afbókað er með minnst 48 klukkustunda fyrirvara er ferðin endurgreidd að fullu. Ef afbókað er með skemmri fyrirvara, eða ef gestir mæta ekki, er ekkert endurgreitt. Afbókun þarf að berast skriflega á mudshark@mudshark.is eða í síma +354 691 1849. Ef MudShark þarf að fella ferð niður, vegna veðurs eða af annarri ástæðu, bjóðum við annan dag og fulla endurgreiðslu ef enginn dagur hentar.

Fleiri spurningar og svör

Deila

Viltu spyrja að einhverju? Smelltu hér.

Allar ferðir →
  • Jarðhitagufa stígur upp á milli hvassra hraundranga yfir brekku þakinni skærgrænum mosa.Hálendi

    Landmannalaugar

    Landmannalaugar eru einstakar og engin furða að þær séu einn vinsælasti áfangastaður á hálendinu. Stórkostlegt landslag og litadýrð.

    245.000 kr.fyrir ferðina

  • Hvítur jeppi ekur yfir jökulá og þeytir upp vatnsvegg.Hálendi

    Þórsmörk og Básar

    Það skiptir ekki máli hvernig viðrar — Þórsmörk er alltaf dásamleg, aðeins 64 km frá Hellu.

    235.000 kr.fyrir ferðina

  • Strokkur gýs að vetri: hár strókur af vatni og gufu upp í heiðbláan himin og ferðafólk fylgist með bak við kaðalinn.Uppsveitir

    Gullni hringurinn

    Gullni hringurinn er ein þeirra útsýnisferða sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Hápunktarnir eru Geysissvæðið, Gullfoss og Þingvellir.

    235.000 kr.fyrir ferðina