
Spurningar og svör
Það sem gestir spyrja oftast um.
Bókun og greiðsla

Er verðið á mann?
Nei. Verðið gildir fyrir ferðina í heild, bílinn og leiðsögumanninn, fyrir allt að sex gesti. Virðisaukaskattur er innifalinn. Verðið er það sama hvort sem þið eruð tvö eða sex.
Verða aðrir með okkur í ferðinni?
Nei. Allar ferðir eru einkaferðir. Aðeins ykkar hópur er með, mest sex gestir, í einum Land Rover með Magnúsi.
Hvernig bóka ég ferð?
Veldu ferð og dag á bókunarsíðu hennar og greiddu með korti. Staðfesting berst strax í tölvupósti.
Hvenær og hvernig greiði ég?
Ferðin er greidd að fullu við bókun og greiðslan staðfestir bókunina. Á vefnum er greitt með korti í gegnum Teya og við sjáum aldrei kortanúmerið. Verð og greiðslur eru í íslenskum krónum.
Get ég afbókað?
Já. Ef þú afbókar minnst 48 klukkustundum fyrir brottför færðu allt endurgreitt á kortið sem greitt var af. Afbókanir innan 48 klukkustunda fyrir brottför eru ekki endurgreiddar og ekki heldur ef enginn mætir.
Til að afbóka, skaltu svara staðfestingarpóstinum eða hringja í 691 1849.
Hversu seint má bóka?
Lokað er fyrir bókanir á netinu sólarhring fyrir brottför. Ef styttra er í ferðina, hafðu samband í tölvupósti eða síma.
Á ferðadegi

Hvar sækið þið okkur?
Við sækjum ykkur á gististaðinn á Hellu, Hvolsvelli eða í nágrenni án aukagjalds eða fyrir framan verslunarkjarnann "Miðjuna" á Hellu. Ef þið gistið utan þess svæðis semjum við fyrir fram um hvar sótt er.
Magnús hefur samband fyrir ferðadaginn og þið ákveðið saman hvar og hvenær.
Hver er leiðsögumaðurinn?
Magnús H. Jóhannsson ekur og leiðsegir í öllum ferðum sjálfur. Hann er doktor í grasafræði og vistfræði og hefur unnið að rannsóknum og ráðgjöf um endurheimt vistkerfa í ríflega 20 ár.
Hverju eigum við að klæðast?
Klæðið ykkur eftir veðri: hlý föt, vatnsheldan fatnað og góða skó. Veðrið getur breyst oft sama daginn, líka á sumrin.
Erum við tryggð í ferðinni?
Bíllinn er tryggður eins og lög gera ráð fyrir og tryggingin nær til farþega. Við mælum samt með að þið hafið eigin ferðatryggingu.
Veður og árstíðir

Hvað gerist ef veðrið er slæmt?
Magnús metur veður og færð að morgni ferðadags. Hann getur breytt leiðinni eða stytt ferðina ef öryggi krefst þess.
Ef við fellum ferð niður vegna veðurs eða færðar velur þú annan dag eða færð allt endurgreitt.
Hvenær eru ferðirnar farnar?
Hver ferð hefur sitt tímabil og það kemur fram á síðu hennar. Sumar ferðir eru farnar allt árið. Hálendisferðirnar ráðast af því hvort fjallvegir eru opnir.

Einhverjar spurningar?
Spurðu Magnús um dagsetningu, leið eða hvað sem er. Hann svarar öllum sjálfur, innan eins til tveggja sólarhringa.
Spurðu Magnús