Beint í efni
Ferðasali dagsferða

Um MudShark

Lítið ferðaþjónustufyrirtæki á Hellu á Suðurlandi sem býður upp á einkaferðir um náttúru Íslands. Sex farþegar að hámarki. Eingöngu einkaferðir.

Fyrirtækið með skrýtna nafnið!

MudShark tours er lítið ferðaþjónustufyrirtæki staðsett á Hellu og býður upp á fjölbreyttar dagsferðir um Suðurland á myndarlegum upphækkuðum Land Rover. Við förum í hefðbundnar Landmannalauga- og Þórsmerkurferðir, en líka óhefðbundnari ferðir t.d. vistfræðiferðir! Skrýtna nafnið „Mudshark“ er enska heitið á háfi sem við veiddum í Þykkvabæjarfjöru. Nú gerum við það ekki lengur þar sem árið 2017 kom út reglugerð sem friðar háfinn. Þó við söknum veiðanna, þá fögnum við því að brugðist sé svona við til að friða tegund sem hefur verið ofveidd síðustu ár. Við höldum samt nafninu auðvitað.

Til að skoða úrval ferða, farið á forsíðuna og smellið á myndirnar. Ef einhverjar spurningar vakna, hafið þá bara samband í síma 691-1849 eða tölvupósti, mudshark@mudshark.is.

Leiðsögumaðurinn

Magnús H. Jóhannsson er doktor í grasafræði og vistfræði. Þess vegna er ferð með MudShark bæði fræðandi og skemmtileg. Magnús hefur brennandi áhuga á náttúru landsins og hefur gaman af því að segja sögur.

Leiðsögumaður í vöðlum krýpur í grunnu vatni við stöðuvatn og heldur á urriða, með dökk fjöll í baksýn.

Hvernig þetta gengur fyrir sig allt saman?

Einn jeppi, sex sæti. Sæki á Hellu, Hvolsvöll og nágrenni án aukagjalds. Í einkaferð gefst okkur tími til að kynnast og njóta saman. Við skoðum okkur um á þeim hraða sem hentar ykkur.

Leyfi og vottanir

Merki Ferðamálastofu: leyfishafi, ferðasali dagsferða, leyfi nr. 2019-046.
  • Ferðasali dagsferðaLeyfi Ferðamálastofu nr. 2019-046
  • Leyfi nr. 1930Farþegaflutningar, lög nr. 28/2017
  • 5,0 af 5 í einkunn eftir 91 umsögn á Tripadvisor91 umsögn á Tripadvisor
  • MudShark ehf. · kt. 440214-0530 · VSK 116193Almennt rekstrarleyfi til farþegaflutninga nr. 1930 frá Samgöngustofu, skv. lögum nr. 28/2017

Hafðu samband

Spurðu um hvað sem er. Magnús svarar um hæl.

Hvað þú vilt vita, og um það bil hvenær þú ert á ferðinni.

Það sem þú skrifar hér er sent MudShark í tölvupósti og hvergi annað. Það er ekki geymt á þessum vef og ekki notað í markaðssetningu. Sjá persónuverndarstefnu. Persónuverndarstefna

Eða sendu tölvupóst beint: mudshark@mudshark.is

Eða hringdu: +354 691 1849