Beint í efni
Hálendi

Landmannalaugar

Landmannalaugar eru einstakar og engin furða að þær séu einn vinsælasti áfangastaður á hálendinu. Stórkostlegt landslag og litadýrð.

← Allar ferðir

245.000 kr.fyrir ferðina, ekki á mann

Lengd
9 klukkustundir
Fjöldi
Mest 6 gestir
Tímabil
15. jún. – 30. sep.
Erfiðleikastig
Miðlungs

Sótt: Hella, Hvolsvöllur og nágrenni, án gjalds; annars staðar eftir samkomulagi

Land Roverinn er upphækkaður og breyttur og það er hátt upp í hann. Ef einhver í hópnum gæti átt erfitt með það, hafðu samband áður en þú bókar: +354 691 1849 eða mudshark@mudshark.is.

Landmannalaugar lætur engan ósnortinn og það má njóta þeirra á ýmsa lund. Hægt er að fara í stutta göngu um Laugahraunið og njóta útsýnisins eða dýfa sér í náttúrulaugina og njóta þess að vera til - munið bara eftir sundfötum og handklæði. Það er um tveggja tíma akstur upp í Laugar, en tekur oft aðeins lengri tíma þar sem ýmislegt er að sjá á leiðinni. Brottför kl.8-9 að morgni eftir óskum hvers og eins. Við ökum upp Gunnarsholtsveg og keyrum framhjá Næfurholti og Hólum. Þar er stutt í Heklu gömlu. Við ökum um Hekluskóga og fræðumst um endurheimt vistkerfa, en Magnús, leiðsögumaðurinn ykkar, er doktor í grasafræði og vistfræði og þekkir sögu svæðisins vel. Hægt er að fara í Laugar upp úr miðjum júní, eða þegar fjallvegir opna, og svo er sjálfhætt þegar þegar vegir verða ófærir aftur. Ferð er að sjálfsögðu endurgreidd ef ekki er hægt að komast um vegna vegalokana eða ófærðar.

Greiðsla og afbókun

Ferðin er staðfest þegar hún hefur verið greidd að fullu. Ef afbókað er með minnst 48 klukkustunda fyrirvara er ferðin endurgreidd að fullu. Ef afbókað er með skemmri fyrirvara, eða ef gestir mæta ekki, er ekkert endurgreitt. Afbókun þarf að berast skriflega á mudshark@mudshark.is eða í síma +354 691 1849. Ef MudShark þarf að fella ferð niður, vegna veðurs eða af annarri ástæðu, bjóðum við annan dag og fulla endurgreiðslu ef enginn dagur hentar.

Fleiri spurningar og svör

Deila

Viltu spyrja að einhverju? Smelltu hér.

Allar ferðir →
  • Hvítur jeppi ekur yfir jökulá og þeytir upp vatnsvegg.Hálendi

    Þórsmörk og Básar

    Það skiptir ekki máli hvernig viðrar — Þórsmörk er alltaf dásamleg, aðeins 64 km frá Hellu.

    235.000 kr.fyrir ferðina

  • Breiður foss fellur á milli snævi þakinna hlíða, og röð af fólki í litríkum úlpum stendur smá við rætur hans.Strönd

    Suðurströndin

    Heilsdagsferð meðfram suðurströnd Íslands, yfir stærsta landbúnaðarsvæði landsins, með leiðsögumanni sem er doktor í grasafræði og vistfræði.

    235.000 kr.fyrir ferðina

  • Strokkur gýs að vetri: hár strókur af vatni og gufu upp í heiðbláan himin og ferðafólk fylgist með bak við kaðalinn.Uppsveitir

    Gullni hringurinn

    Gullni hringurinn er ein þeirra útsýnisferða sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Hápunktarnir eru Geysissvæðið, Gullfoss og Þingvellir.

    235.000 kr.fyrir ferðina