Beint í efni
Hálendi

Þórsmörk og Básar

Það skiptir ekki máli hvernig viðrar — Þórsmörk er alltaf dásamleg, aðeins 64 km frá Hellu.

← Allar ferðir

235.000 kr.fyrir ferðina, ekki á mann

Lengd
9 klukkustundir
Fjöldi
Mest 6 gestir
Tímabil
20. apr. – 25. sep.
Erfiðleikastig
Miðlungs

Sótt: Hella, Hvolsvöllur og nágrenni, án gjalds; annars staðar eftir samkomulagi

Land Roverinn er upphækkaður og breyttur og það er hátt upp í hann. Ef einhver í hópnum gæti átt erfitt með það, hafðu samband áður en þú bókar: +354 691 1849 eða mudshark@mudshark.is.

Það er alveg erfitt að klöngrast inn í Þórsmörk. Vegurinn verður sífellt grýttari og torfærari, og það nokkuð margar ár og sprænur á leiðinni. Við stoppum við Gígjökul og skoðum jarðmyndanir sem flóðin í Eyjafjallajökulsgosinu 2010 skildu eftir sig. Nauthúsagil og Stakkholtsgjá eru líka á dagskrá. Við gefum okkur góðan tíma til að skoða. Við endum í Básum, þar sem hægt er að borða nesti og skreppa í smá gönguferð - allt eftir því hvað hver og einn vill. Takið með viðeigandi fatnað og nesti. Opið er fyrir ferðir frá apríl fram í október. Það gildir hér það sama og fyrir aðrar ferðir, að ef færðin og aðstæður eru slæmar og hætt verður við ferðina, verður hún endurgreidd að fullu eða boðið upp á að bóka aðra ferð síðar.

Greiðsla og afbókun

Ferðin er staðfest þegar hún hefur verið greidd að fullu. Ef afbókað er með minnst 48 klukkustunda fyrirvara er ferðin endurgreidd að fullu. Ef afbókað er með skemmri fyrirvara, eða ef gestir mæta ekki, er ekkert endurgreitt. Afbókun þarf að berast skriflega á mudshark@mudshark.is eða í síma +354 691 1849. Ef MudShark þarf að fella ferð niður, vegna veðurs eða af annarri ástæðu, bjóðum við annan dag og fulla endurgreiðslu ef enginn dagur hentar.

Fleiri spurningar og svör

Deila

Viltu spyrja að einhverju? Smelltu hér.

Allar ferðir →
  • Jarðhitagufa stígur upp á milli hvassra hraundranga yfir brekku þakinni skærgrænum mosa.Hálendi

    Landmannalaugar

    Landmannalaugar eru einstakar og engin furða að þær séu einn vinsælasti áfangastaður á hálendinu. Stórkostlegt landslag og litadýrð.

    245.000 kr.fyrir ferðina

  • Breiður foss fellur á milli snævi þakinna hlíða, og röð af fólki í litríkum úlpum stendur smá við rætur hans.Strönd

    Suðurströndin

    Heilsdagsferð meðfram suðurströnd Íslands, yfir stærsta landbúnaðarsvæði landsins, með leiðsögumanni sem er doktor í grasafræði og vistfræði.

    235.000 kr.fyrir ferðina

  • Strokkur gýs að vetri: hár strókur af vatni og gufu upp í heiðbláan himin og ferðafólk fylgist með bak við kaðalinn.Uppsveitir

    Gullni hringurinn

    Gullni hringurinn er ein þeirra útsýnisferða sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Hápunktarnir eru Geysissvæðið, Gullfoss og Þingvellir.

    235.000 kr.fyrir ferðina