Beint í efni

Skilmálar

Síðast uppfært

Þessir skilmálar gilda um allar ferðir sem MudShark ehf. selur. Með því að bóka ferð samþykkir þú þá.

  1. 1.Um okkur

    MudShark ehf., kt. 440214-0530, VSK-númer 116193, Freyvangi 22, 850 Hellu. Fyrirtækið hefur leyfi Ferðamálastofu sem ferðasali dagsferða, nr. 2019-046, og rekstrarleyfi Samgöngustofu til farþegaflutninga, nr. 1930, samkvæmt lögum nr. 28/2017.

  2. 2.Bókun

    Þú bókar ferð á vefnum, í tölvupósti eða síma. Bókun er staðfest þegar þú færð staðfestingu frá okkur í tölvupósti með bókunarnúmeri.

    Lokað er fyrir bókanir á vefnum 48 klukkustundum fyrir brottför. Þá rennur líka út fresturinn til að afbóka gegn fullri endurgreiðslu. Ef styttra er í ferð má hafa samband í tölvupósti eða síma.

    Allar ferðir eru einkaferðir fyrir mest sex gesti í einum bíl. Stærri hópar fá sérstakt tilboð.

    Engin aldurstakmörk eru í ferðirnar. Barn tekur eitt af sætunum sex, hvort sem það situr í barnabílstól eða ekki. MudShark útvegar ekki barnabílstóla. Ef barn þarf barnabílstól eða bílpúða er það á ábyrgð foreldra að koma með hann.

    Land Roverinn er upphækkaður og breyttur og það er hátt upp í hann. Ef einhver í hópnum gæti átt erfitt með það, hafðu samband við okkur áður en þú bókar.

  3. 3.Verð og greiðsla

    • Verð eru í íslenskum krónum og virðisaukaskattur er innifalinn.
    • Verðið gildir fyrir ferðina, það er bílinn og leiðsögumanninn fyrir allt að sex gesti. Það er ekki reiknað á mann.
    • Ferðin er greidd að fullu við bókun. Bókunin er staðfest þegar greiðslan hefur borist.
    • Á vefnum er greitt með greiðslukorti í gegnum Teya og við sjáum aldrei kortanúmerið. Ef bókað er í tölvupósti eða síma, eða send bókunarbeiðni af vefnum, sendum við upplýsingar um greiðslu í tölvupósti.
    • Allar greiðslur og endurgreiðslur eru í íslenskum krónum.
  4. 4.Ef þú afbókar

    Afbókun þarf að berast skriflega á mudshark@mudshark.is eða í síma +354 691 1849. Svar við staðfestingarpóstinum telst skrifleg afbókun. Miðað er við þann tíma sem afbókunin berst MudShark, það er þegar pósturinn berst eða þegar hringt er.

    • Minnst 48 klukkustundum fyrir brottför: allt endurgreitt.
    • Innan 48 klukkustunda fyrir brottför: ekki endurgreitt.

    Mæti gestur ekki á umsömdum stað og tíma er ferðin ekki endurgreidd.

    Endurgreitt er á sama greiðslukort eða reikning og greitt var af.

    Réttur neytenda til að falla frá samningi innan 14 daga á ekki við um ferðir sem eru bundnar tilteknum degi, sbr. 18. gr. laga nr. 16/2016 um neytendasamninga.

  5. 5.Veður, færð og breytingar

    Ferðir á hálendinu og yfir óbrúaðar ár ráðast af veðri og færð. Leiðsögumaðurinn metur aðstæður að morgni ferðadags og getur breytt leiðinni eða stytt ferðina ef öryggi krefst þess.

    MudShark getur þurft að fella ferð niður, til dæmis vegna veðurs, færðar, bilunar, veikinda eða tvíbókunar. Hver sem ástæðan er höfum við samband við þig í tölvupósti eða síma um leið og hún liggur fyrir og bjóðum þér annan dag. Ef enginn dagur hentar færðu ferðina endurgreidda að fullu.

    Við berum ekki ábyrgð á öðrum kostnaði sem niðurfelling kann að valda, svo sem gistingu eða flugi.

  6. 6.Á ferðadegi

    • Við sækjum gesti á gististað á Hellu, Hvolsvelli og í nágrenni án aukagjalds. Utan þess svæðis er hægt að sækja gesti eftir samkomulagi. Um það þarf að semja við Magnús í hvert sinn áður en bókað er, líka um aukakostnað ef einhver er.
    • Klæddu þig eftir veðri: hlý föt, vatnsheldan fatnað og góða skó.
    • Fylgja þarf fyrirmælum leiðsögumanns um öryggi. Hann getur neitað gesti um far sem er undir áhrifum áfengis eða vímuefna eða stofnar sjálfum sér eða öðrum í hættu. Þá er ekki endurgreitt.
  7. 7.Ábyrgð og tryggingar

    Bíllinn er tryggður hjá VÍS (Vátryggingafélagi Íslands hf.) eins og lög gera ráð fyrir og tryggingin nær til farþega. Við mælum með að gestir hafi eigin ferðatryggingu.

    Við berum ekki ábyrgð á persónulegum munum gesta nema tjón verði vegna vanrækslu okkar. Ekkert í þessum skilmálum takmarkar rétt neytenda samkvæmt lögum.

  8. 8.Kvartanir og ágreiningur

    Ef eitthvað fer úrskeiðis viljum við vita það sem fyrst, helst á meðan ferðin stendur svo hægt sé að bæta úr. Skriflegar kvartanir sendist á mudshark@mudshark.is.

    Náist ekki samkomulag geta neytendur leitað til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Um skilmálana gilda íslensk lög og ágreiningi má vísa til Héraðsdóms Suðurlands.

  9. 9.Breytingar á skilmálum

    Um hverja bókun gilda þeir skilmálar sem voru í gildi þegar hún var staðfest.