Beint í efni

Persónuverndarstefna

Síðast uppfært

MudShark ehf. rekur þennan vef og ber ábyrgð á þeim persónuupplýsingum sem honum berast. Hér kemur fram hvaða upplýsingar það eru, til hvers þær eru notaðar, hverjir fá þær, hve lengi þær eru geymdar og hvaða rétt þú átt.

  1. 1.Ábyrgðaraðili

    MudShark ehf., kt. 440214-0530, Freyvangi 22, 850 Hellu. Netfang: mudshark@mudshark.is. Sími: +354 691 1849.

    Fyrirtækið er lítið og þarf ekki persónuverndarfulltrúa. Magnús H. Jóhannsson svarar öllum erindum um persónuvernd sjálfur.

  2. 2.Samskiptaformið

    Þegar þú sendir skilaboð á síðunni Um okkur fáum við nafn þitt, netfang og skilaboðin. Þau berast MudShark í tölvupósti og eru ekki vistuð í gagnagrunni vefsins. Við notum þau aðeins til að svara þér.

    Magnús eyðir póstinum 90 dögum eftir síðasta svar. Ef erindið leiðir til bókunar gildir kaflinn um varðveislu hér fyrir neðan.

    Heimild: beiðni þín um svar áður en samningur er gerður (b-liður 1. mgr. 6. gr. persónuverndarreglugerðarinnar).

  3. 3.Bókanir

    Þegar ferð er bókuð skráum við nafn, netfang, síma, ferð, dagsetningu, fjölda gesta og greiðslur, og hvar þið gistið og athugasemdir ef þið skráið þær. Þessar upplýsingar þarf til að halda ferðina, sækja ykkur og gefa út reikning. Bókanir sem berast í síma eða tölvupósti eru skráðar á sama hátt.

    Nafn, netfang og sími eru nauðsynleg til að bóka á vefnum. Án þeirra getum við hvorki staðfest bókunina né haft samband við ykkur fyrir ferðina. Gististaður og athugasemdir eru valfrjáls.

    Athugasemdir notum við aðeins til að undirbúa ferðina. Við þurfum engar upplýsingar um heilsufar og biðjum þig að skrifa ekkert um það þar.

    Við sendum ekkert fréttabréf. Fyrir utan póst frá Magnúsi um ferðina sjálfa sendum við aðeins þessa pósta á netfangið:

    • staðfestingu þegar bókun hefur verið greidd með korti, á vefnum eða með greiðslutengli
    • öruggan greiðslutengil ef þú bókar í tölvupósti eða síma eða sendir bókunarbeiðni
    • áminningu daginn fyrir ferðina
    • einn póst eftir ferðina þar sem við biðjum þig að skrifa opinbera umsögn um hana á Tripadvisor eða Google
    • staðfestingu á að bókunarbeiðni hafi borist, ef þú sendir beiðni í stað þess að greiða á vefnum
    • tilkynningu um endurgreiðslu ef greiðsla berst of seint til að hægt sé að staðfesta bókunina

    Ef greitt er með korti, á vefnum eða með greiðslutengli sem við sendum, fer greiðslan fram hjá Teya. Teya tekur við kortaupplýsingunum og við fáum aðeins að vita hvort greiðslan tókst, fjárhæðina og tilvísunarnúmer greiðslunnar. Þau eru geymd með bókuninni. Við geymum aldrei kortanúmer.

    Heimild: samningur um ferðina (b-liður) og lagaskylda (c-liður). Beiðnin um umsögn byggir á lögmætum hagsmunum okkar (f-liður). Við viljum heyra hvernig ferðin var og fá umsagnir sem hjálpa öðrum ferðamönnum að finna okkur.

    Þú getur hvenær sem er andmælt því að fá beiðni um umsögn (21. gr. persónuverndarreglugerðarinnar). Svaraðu einhverjum pósti frá okkur eða skrifaðu á mudshark@mudshark.is og þá sendum við hana ekki. Það breytir engu um bókunina eða áminninguna fyrir ferðina.

    Við hverja bókunartilraun skráum við tætigildi sem reiknað er úr IP-tölu þinni. Þannig getum við takmarkað fjölda tilrauna, svo að enginn geti tekið alla lausa daga frá í einu. IP-talan sjálf er ekki vistuð og gildinu er eytt eftir einn sólarhring. Heimild: lögmætir hagsmunir af því að verja bókunarkerfið gegn misnotkun (f-liður).

  4. 4.Vefmælingar

    Vefurinn telur heimsóknir á eigin vefþjóni. Fyrir hverja síðu er skráð slóðin, tungumálið, landið sem heimsóknin kemur frá og vefurinn sem vísaði á síðuna. IP-talan sjálf er aldrei vistuð í mælingunum og ekkert er vistað í tækinu þínu.

    Til að greina gesti í sundur sama daginn er reiknað óafturkræft tætigildi úr IP-tölu, vafra, dagsetningu og leynilykli. Lykillinn er ekki geymdur í gagnagrunninum og hann breytist ekki. Dagsetningin er hluti af útreikningnum, svo sami gestur fær nýtt gildi á hverjum degi. Án lykilsins er ekki hægt að tengja saman gildi ólíkra daga. Sá sem hefur lykilinn og veit IP-tölu og vafra tiltekins gests getur þó reiknað gildi hans fyrir hvaða dag sem er.

    Skráningum er eytt eftir 24 mánuði. Heimild: lögmætir hagsmunir af því að vita hvernig vefurinn er notaður (f-liður).

  5. 5.Vafrakökur og samþykki

    Vefurinn setur aðeins nauðsynlegar kökur nema þú samþykkir annað. Síðan um vafrakökur sýnir hverja köku og þar getur þú breytt vali þínu hvenær sem er.

    Þegar þú velur eða breytir samþykki skráum við valið, tímann og tætigildi IP-tölu og vafra. Í skráningunni kemur líka fram hvort Google Analytics eða Facebook Pixel voru virk á vefnum þegar þú valdir. Skráningin fær handahófskennt auðkenni og sama auðkenni er geymt í kökunni sem man valið, svo að hægt sé að tengja þær saman. Það er gert til að geta sýnt fram á samþykkið, eins og 1. mgr. 7. gr. persónuverndarreglugerðarinnar krefst. Færslunum er eytt eftir fjögur ár. Heimild: lagaskylda (c-liður).

    Ef Google Analytics eða Facebook Pixel eru virk á vefnum hlaðast þau aðeins eftir að þú samþykkir tölfræði- eða markaðskökur. Þá fá Google og Meta upplýsingar um heimsóknina og geta unnið þær í Bandaríkjunum. Ef annað hvort þeirra bætist við eða er tekið af vefnum gildir fyrra valið ekki lengur og spurningin um vafrakökur birtist aftur. Heimild: samþykki þitt (a-liður), sem þú getur afturkallað á síðunni um vafrakökur.

  6. 6.Hve lengi gögnin eru geymd

    Í gagnagrunni vefsins eru gögn geymd eins og hér segir. Síðan er þeim eytt sjálfkrafa.

    • Bókanir, með nafni og netfangi gests, fjárhæðum, greiðslum og endurgreiðslum: sjö ár frá því að bókað var. Lög nr. 145/1994 um bókhald skylda okkur til að geyma bókhaldsgögn.
    • Símanúmer, gististaður og athugasemdir: 90 dagar eftir ferðina. Þá hættir tengillinn á síðu bókunarinnar líka að virka. Ef endurgreiðsla á bókuninni er ógreidd eða óútkljáð er beðið þar til hún er frágengin.
    • Bókanir sem aldrei var lokið og ekkert var greitt fyrir: 30 dagar frá því að byrjað var á þeim. Ef greiðsla fór í gegn, eða óvíst er hvort svo var, gildir sjö ára reglan hér á undan.
    • Tilkynningar frá Teya um greiðslur: 24 mánuðir.
    • Tætigildi frá bókunartilraunum: einn sólarhringur.
    • Vefmælingar: 24 mánuðir.
    • Skráningar á samþykki fyrir vafrakökum: fjögur ár.

    Skilaboð úr samskiptaforminu fara aldrei í gagnagrunninn. Um þau gildir kaflinn um samskiptaformið hér að ofan.

    Tölvupósti um bókanir og fyrirspurnir eyðir Magnús úr pósthólfi MudShark 90 dögum eftir ferðina eða síðasta svar, hvort sem síðar verður. Reikningar eru geymdir með bókhaldinu.

  7. 7.Hverjir fá gögnin

    Þessi fyrirtæki vinna gögnin fyrir okkur:

    • Datatech ehf. (Vefapp), kt. 420115-0240, smíðar og rekur vefinn og hefur aðgang að gögnunum til þess.
    • Vercel Inc. hýsir vefinn. Vefþjónarnir sem keyra hann eru í Frankfurt, en hver beiðni fer um þann netþjón í alþjóðlegu neti Vercel sem er næstur þér.
    • Supabase Pte. Ltd. í Singapúr rekur gagnagrunninn ásamt Supabase, Inc. í Bandaríkjunum. Gagnagrunnurinn er hýstur í Frankfurt, en gögn geta verið flutt til Singapúr og Bandaríkjanna á grundvelli staðlaðra samningsskilmála framkvæmdastjórnar ESB.
    • Resend Inc. sendir tölvupóst frá vefnum og geymir gögn um póstana í Bandaríkjunum.
    • Google (Google Workspace) hýsir netfang MudShark. Fyrirspurnir og bókanir berast þangað og eru geymdar þar.

    Vercel, Resend og Google eru bandarísk fyrirtæki og geta unnið gögnin í Bandaríkjunum. Flutningur gagnanna þangað byggist á gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna (Data Privacy Framework) eða stöðluðum samningsskilmálum framkvæmdastjórnar ESB. Þú getur fengið afrit af samningsskilmálunum með því að skrifa okkur.

    Vercel, Supabase og Resend skrá tæknilegar upplýsingar, svo sem IP-tölur, hvaða síður eru sóttar og hvort póstur kemst til skila. Þær eru geymdar í takmarkaðan tíma.

    Kortagreiðslur á vefnum, líka með greiðslutengli, fara í gegnum Teya Iceland hf., sem er færsluhirðir með starfsleyfi á Evrópska efnahagssvæðinu. Teya vinnur greiðsluupplýsingar sem sjálfstæður ábyrgðaraðili, samkvæmt reglum kortafyrirtækjanna og lögum um greiðsluþjónustu. Þegar greiðslugluggi Teya opnast fær Teya nafn, netfang og síma, bókunarnúmerið, ferðina, brottfarartímann, fjárhæðina og tengil á síðu bókunarinnar. Kortaupplýsingarnar slærðu svo beint inn í gluggann. Sjá nánar í persónuverndarstefnu Teya.

    Bókari okkar fær sölugögn úr bókunum til að færa bókhaldið: nafn gests, bókunarnúmer, ferð og brottfarartíma, fjárhæðir og færslunúmer Teya.

    Við seljum ekki persónuupplýsingar og afhendum þær aðeins þeim sem taldir eru upp hér að ofan, eða þegar lög krefjast þess.

  8. 8.Réttindi þín

    Þú átt rétt á að:

    • fá að vita hvaða upplýsingar við höfum um þig og fá afrit af þeim
    • láta leiðrétta rangar upplýsingar
    • láta eyða upplýsingum, nema lög skyldi okkur til að geyma þær
    • andmæla vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum eða fá hana takmarkaða
    • fá upplýsingar sem þú lést okkur í té á tölvutæku formi
    • afturkalla samþykki hvenær sem er

    Við tökum engar ákvarðanir um þig sem byggjast eingöngu á sjálfvirkri vinnslu.

    Sendu beiðni á mudshark@mudshark.is. Við svörum innan mánaðar.

    Þú getur líka kvartað til Persónuverndar, personuvernd.is, netfang postur@personuvernd.is.

  9. 9.Breytingar

    Ef stefnan breytist birtum við nýja útgáfu hér og uppfærum dagsetninguna efst á síðunni.